14. október 2026
14. október 2026
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Sundlaugavegi, Hafnarfjarðarvegi, Sogavegi og Kópavogsbraut.

5.10 2026
Brot 211 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 28. september - 5 október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 46.370 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Ellefu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
7.10 2026
Brot 33 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Sundlaugaveg, við Tjaldsvæðið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.
Brot 104 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Hafnarfjarðarveg, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.178 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 132.
8.10 2026
Brot 28 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Sogaveg, við Sogaveg 80. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því óku 37% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.
Brot 12 ökumanna voru mynduð á Kópavogsbraut í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Kópavogsbraut, við Kársnesskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því óku 22% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.