Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hjarðarhaga í Reykjavík

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 42-46% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 43-45 km/klst.