Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hjallabraut í Hafnarfirði

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, við Hjallaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.