Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. september 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hjallabraut í Hafnarfirði

Brot 21 ökumanns var myndað á Hjallabraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í norðurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71. Á þessum stað á Hjallabraut eru merktar gangbrautir.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.