Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. júní 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Háteigsvegi í Reykjavík

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlegur þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 33-43%.