Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Háteigsvegi í Reykjavík

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í austurátt, að Háteigsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.