Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. nóvember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hallsvegi í Reykjavík

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sautján óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.