Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. maí 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi

Brot 99 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, norðan Arnarnesvegar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 823 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.