Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi

Brot 102 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að Kópavogslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 971 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.