Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. febrúar 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi

Brot 153 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að Fífuhvammi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.291 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.