Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. febrúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarnesbrú. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 725 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrír óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.