25. apríl 2020
25. apríl 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ
Brot 111 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 866 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 124.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.