Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, skammt frá Kópavogslæk (sunnanmegin). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.393 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Þess má geta að nokkur umferðaróhöpp urðu á umræddum vegarkafla í morgun.