Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi

Brot 239 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðausturátt, norðan við gatnamót Reykjavíkurvegar, Álftanesvegar og Fjarðarhrauns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 864 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.