Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi

Brot 185 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, sunnan Arnarnesvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.094 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.