Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. júlí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, yfir gatnamót Vífilsstaðavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 801 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.