Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. ágúst 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Gullteig í Reykjavík

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í norðurátt, við Kirkjuteig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.