Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. september 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Gullteig í Reykjavík

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 160 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.