Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. mars 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Gullinbrú í Reykjavík

Brot 142 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, á móts við Básbryggju. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 486 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.