7. nóvember 2016
7. nóvember 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Grensásvegi í Reykjavík
Brot 21 ökumanns var myndað á Grensásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 250 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.