Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. júlí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Gömlu Hringbraut í Reykjavík

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Gömlu Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gömlu Hringbraut í vesturátt, á móts við BSÍ. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Gömlu Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.