Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Garðaflöt í Garðabæ

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Garðaflöt í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðaflöt í vesturátt, við Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Garðaflöt er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.