Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Fléttuvöllum í Hafnarfirði

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í vesturátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Fléttuvöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.