Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Flatahrauni í Hafnarfirði

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flatahraun í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 266 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Eftirlit lögreglunnar á Flatahrauni er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Flatahrauni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.