Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Fjallkonuvegi í Reykjavík

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Foldaskóla. Á þrjátíu mínútum, eftir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 36-48% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 44-46 km/klst.