Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Fjallkonuvegi í Reykjavík

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í vesturátt, að Fannafold. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.