Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. febrúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Fífuhvammsvegi í Kópavogi

Brot 71 ökumanns var myndað á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, við Hlíðardalsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 347 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.