Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. apríl 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Fífuhvammsvegi í Kópavogi

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Dalsmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 568 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.