Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. ágúst 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Engjavegi í Reykjavík

Brot 97 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, á móts við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Engjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.