Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Engjavegi í Reykjavík

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, gegnt Laugardalshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 73%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49,65 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65.

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.