Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. ágúst 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Engjavegi í Reykjavík

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, við Laugardalshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 61%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sextán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.