2. október 2015
2. október 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Eiríksgötu í Reykjavík
Brot 49 ökumanna voru mynduð á Eiríksgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiríksgötu í vesturátt, á móts við Eiríksgötu 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 271 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.
Vöktun lögreglunnar á Eiríksgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.