Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Eiðsgranda í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Keilugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 210 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.