Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. maí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Eiðsgranda í Reykjavík

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Seilugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 276 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.