Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. febrúar 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Eiðsgranda

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í austurátt að Boðagranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 276 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82.

Lögreglan hefur áður verið við eftirlit á Eiðsgranda en við síðustu vöktun á þessum stað óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt, eða 38%, og meðalhraði hinna brotlegu var þá rúmlega 64 km/klst. Niðurstaðan nú er því mun betri hvað þetta varðar.