Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. nóvember 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Eiðsgranda

Brot 90 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda eftir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt að Keilugranda. Á einni klukkustund fóru 392 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 88.