7. desember 2016
7. desember 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Dyngjuvegi í Reykjavík
Brot 15 ökumanna voru mynduð á Dyngjuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dyngjuveg í austurátt, við Hjallaveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Dyngjuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.