22. febrúar 2010
22. febrúar 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Dyngjuvegi í Reykjavík
Brot 14 ökumanna voru mynduð á Dyngjuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dyngjuveg í austurátt, að Hjallavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.
Eftirlit lögreglunnar á Dyngjuvegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.