Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. október 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Drekavöllum í Hafnarfirði

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Drekavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Drekavelli í norðurátt, á milli Einivalla og Daggarvalla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Drekavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.