13. desember 2023
13. desember 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Digranesvegi í Kópavogi
Brot 25 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 137 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.