Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. september 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Digranesvegi

Brot 184 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópavogi en þar er 30 km hámarkshraði. Á tveimur klukkustundum, síðdegis, fóru 288 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en sá sem hraðast ók var mældur á 60.

Eftirlit lögreglu kom í kjölfar ábendinga frá íbúum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.