Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Dalvegi í Kópavogi

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í vesturátt, á móts við Gróðrarstöðina Storð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 371 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.