Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. júlí 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bústaðavegi í Reykjavík

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í austurátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 436 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.