15. ágúst 2008
15. ágúst 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Bústaðavegi
Brot 340 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallavegar á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Bústaðaveg í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tuttugu og tveimur klukkustundum fóru 5.664 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102.