5. febrúar 2007
5. febrúar 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Bústaðavegi
Brot 289 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallavegar fyrir helgina. Meðalhraði hinna brotlegu, sem óku Bústaðaveg í vesturátt, var tæpir 77 km/klst en leyfður hámarkshraði á þessum kafla er 60. Sjötíu og einu ökutæki var ekið á meira en 80 km hraða og sex ökutækjum var ekið hraðar en 90. Eitt ökutæki var mælt á 122 km hraða.
Á sama tímabili óku tólf ökumenn gegn rauðu ljósi á þessum gatnamótum.