Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

Brot 235 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 24. ágúst til mánudagsins 29. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á fimm sólarhringum fóru 38.359 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.