14. janúar 2022
14. janúar 2022
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
Brot 69 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 12. janúar til föstudagsins 14. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tveimur sólarhringum fóru 11.906 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.