Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í austurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.