12. september 2024
12. september 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
Brot 33 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 9. september til fimmtudagsins 12. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 10.451 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.