18. desember 2023
18. desember 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
Brot 31 ökumanns var myndað á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 14. desember til sunnudagsins 17. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 16.937 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.